Sverrir Pįll Erlendsson

http://svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Viltu aðspyrja hann um það?

08.06.2009 08:31 - 566 lestrar

Ég hef að vísu ekki heyrt svona vitlausa spurningu, en við má búast að ekki líði á löngu þar til svo verður. Það hefur lengi verið kækur hjá útvarpsfólki að nota orðið aðspurður þegar fullkomlega nóg hefði verið að segja spurður. Og reyndar hefði mátt sleppa spurður, hann hefði sjálfsagt fátt sagt ef enginn hefði spurt. Dæmi: Aðspurður sagði Jón að hann væri enginn auli. Langbest væri að segja: Jón sagði að hann væri enginn auli.

En að segja eins og stúlkan sagði um Steingrím Sigfússon áðan: Aðspurður um  lánin sagði Steingrímur að... þá virðist vera orðin til sögnin aðspyrja og sambandið aðspyrja um. (Spurning hvort næst verði sagt umaðspurður sagði Steingrímur eitthvað!!!)

 


1

RE: Viltu aðspyrja hann um það?

Þorsteinn G. Gunnarsson - 08.06.2009 15:15 - steini[hjį]kom.is

Sæll Sverrir.

 

Ég skil vel hvað þú ert að fara. Vandamálið þegar verið er að skrifa fréttir eða frásagnir sem byggja annars vegar á því sem menn segja og svörum við spurningum þá skiptir oft máli að taka fram hvað með segja og hverju með svara. Þá er aðspurð(ur) oft notað, því frasinn ,,Í máli hans kom fram..." er ekki góður í þessu sambandi né nokkuð annað sem mér dettur í hug. Ertu með einhverja tillögu?

 

Hitt er annað mál að orðaröð er farin að vera sérlega undarleg í íslensku. Facebook spyr reglulega: Hvað eru að hugsa um? Mamma mín sagði mér að rétt væri að segja: Um hvað ertu að hugsa? Hitt er ensk orðaröð. Penninn (eða heitir það kannski Eymundson eða kannski bæði?) lokaði um daginn á Glerártorgi og opnuð var ný deild fyrir hljóm- og mynddiska, leiki og fleira. Þar er spurt, með stórum stöfum á einum veggnum: Hvað ert þú að hlusta á? (gott að þeir sögðu ekki Á hvað ert þú að hlusta á?

 

Sjáumst um helgina 


Leggja orš ķ belg

31.07.2010 11:06
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.191.104, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur