Einfaldt Matreiðslu Vasa-Qver, fyrir heldri manna Húss-freyjur útgefið af Frú Assessorinnu Mörtu Maríu Stephensen er með merkari ritum eftir mág hennar, Magnús Stephensen, sem ekki gat verið þekktur fyrir það kyns síns vegna árið 1800 að hafa áhuga á eða gefa út mataruppskriftir. Undir lok kversins er þessi búðingsuppskrift.
"Seinast í veislum eru á stundum brúkaðar kaldar rjómaflautir, tilbúnar af hér um 2 spónblöðum af fínu hveiti, nokkrum eggjablómum, heilum mola af kanelberki, og, ef til er, sítrónuberki, nokkru af sykri smásteyttu og hér um 1 1/2 mörk af ósúrum rjóma. Þetta allt er gæða vel samanhrært, sett svo í pott yfir eld, og þar ákaft slegið eður uppþyrlað, með birktum hrísvendi, uns það þykknar og tekur til að sjóða; þá er því hellt á fat, og borðað kalt, eins og áður er sagt, allraseinast."
Verði ykkur að góðu.

RE: Tillaga að eftirrétti kvöldsins:
GIS - 03.01.2010 09:47 - GIS[hjį]GISCOUNTRY.COM - GISCOUNTRY.COM