Það gengur ögn hægar núna þegar skólinn er byrjaður en ég er nokkurn veginn búinn með pallinn við vesturhliðina. þarna sést annars vegar eftir honum í átt að blóðrauðri berjalyngsbrekkunni - það eru enn tínanleg ber - og hins vagar sést í áttina til Akureyrar:
Þetta klárast á endanum. Mig vantar nokkrar spýtur og svo þarf ég að jafna staurana og leggja ofan á þá - og útbúa tröppur á tveim stöðum. Þetta verður ballfært áður en varir.

RE: Vesturbakkinn
Toggi - 19.09.2009 08:32 - toggitryggva[hjį]gmail.com - www.varrius.blogspot.comRE: Vesturbakkinn
Eygló Aradóttir - 20.09.2009 11:36 - eyglo[hjį]snerpa.isSæll vertu, það er "rífandi gangur" í danspallasmíðinnni hjá þér ;)
Ætlarðu að setja plexigler eða eitthv. slíkt á milli stólpanna til að halda útsýninu? og hvar færðu það þá?
Kv úr rigningunni á Söðurlandinu.
PS: var á ferð um Barðastrandarsýslur í vikunni, fram og til baka með 2ja daga millibii, gaman að sjá hvernig haustið er að færa sig til vesturs. Litirnir í kringum Bjarkalund voru svona eins og í bakgrunninum hjá þér með gylltum tónum líka.
RE: Vesturbakkinn
svp - 21.09.2009 19:22 - svp[hjį]ma.is - svp.isSæl Eygló.
Já, ég er að hugsa um að hafa þetta gagnsætt til að tapa ekki útsýninu og halda birtunni. Það á að vera hægt að fá 10-12 mm gler í svona, ég hef séð það fyrir sunnan en ekki athugað hvar það fæst. Mér er sagt að plexi bæði verpist og verði ótrúlega fljótt matt.