Sverrir Pįll Erlendsson

http://svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Pallsmíði lokið að sinni

20.09.2009 20:29 - 2367 lestrar

Jæja. Það er komið svo að pallsmíðum sumarsins er lokið. Eftir er eitt og annað sem flest bíður vors, en ég dytta þó trúlega að einhverju í frítímum í haust, en ætla aðallega að njóta verunnar í Hálsakoti þá.

Í dag lauk ég við að jafna staurana, setja á þá handrið og einfalda lista neðan til þar til ég finn einhverja lausn á því hvað kemur þarna á milli. Í gær lauk ég við að þekja pallinn við bakhliðina. Það var með ólíkindum hvað Húsasmiðjumenn létu mig hafa af rusltimbri í það. Ein spýtan var til dæmis hálfsöguð og önnur boruð fyrir skrúfum. Þetta er bara drasl sem þeir selja manni á fullu verði. En hér koma myndir frá  því ég lauk verki i dag:

img_8227_400

Þetta er sem sagt framhliðin og handriðið sést þokkalega.

img_8237_400

Þetta er fjarskafegurðin, heimreið og allt - og lyngið rautt að baki.

img_8239_400

Vesturhliðin. Þar sem pallurinn mjókkar, nálægt miðju húsi, koma tröpur til að stytta leiðina í kjallarann.

img_8242_400

Ég hef ekki gert mikið af því að sýna bakhliðina en þarna er hún og sést að pallurinn er allan hringinn og þarna sést líka hvar tröppurnar eiga að koma, þar sem handriðið endar.

img_8249_400 

Þá erum við komin hringinn og arna sést handriðið betur.

Sem sagt gott í bili.


1

RE: Pallsmíði lokið að sinni

steini - 20.09.2009 22:25 - steinig[hjį]internte.is
Þetta frábært - ég hlakka mikið til að ganga hringinn Smile

2

RE: Pallsmíði lokið að sinni

Elís - 20.09.2009 23:09 - elis.benediktsson[hjį]gmail.com

Líst vel á þetta Sverrir minn, fagmannleg smíð. Herrasetrið þitt verður myndarlegra með hverri vikunni sem líður.

E.S. Ertu búinn að skipta um bíl? 


3

RE: Pallsmíði lokið að sinni

svp - 21.09.2009 06:44 - svp[hjį]ma.is - svp.is
2005

4

RE: Pallsmíði lokið að sinni

Edda Erlendsdóttir - 21.09.2009 08:47 - eddaerlends[hjį]gmail.com
Frábært hjá þér bróðir sæll

5

RE: Pallsmíði lokið að sinni

Eygló Aradóttir - 23.09.2009 20:40 - eyglo[hjį]snerpa.is
Gratulera með flott verk. Er að byrja á palli hjá mér.

6

RE: Pallsmíði lokið að sinni

Siggi - 11.10.2009 11:48
Vonandi ekki neitt mynkörfulán á bak við þetta glæsilega timburhús. Laughing

Leggja orš ķ belg

31.07.2010 11:03
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.191.101, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur