Sverrir Pįll Erlendsson

http://svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Ógeðið á Akureyrarstrætum

07.12.2008 09:01 - 1633 lestrar

Það er í sannleika sagt ömurlegt að fara um Akureyrarstræti þennan veturinn. Það hefur snjóað meira og oftar en síðustu nokkra veturna, en snjórinn er ekki slæmur. Það er þessi bölvaður ósiður sem umhverfisnefnd bæjarins tók upp eftir Reykvíkingum í fyrra að ausa salti á götur bæjarins. Í stað þess að snjór fái að troðast og verða vel fær akandi og gangandi, eins og hann er jafnan enn í fáfarnari götum og hverfum, er nú á fjölfarnari slóðum allt sífellt útbíað í brúnleitum saltgraut, hreinum viðbjóði. Þetta skríður undan fótum manns þegar gengið er, loðir við skó og buxnaskálmar. Þegar þessi fatnaður þornar sjást saltaumarnir hvítir eins og árhringir. Og í þessum saltviðbjóði rennur gangandi maður miklu meira til en í troðnum snjó. Ég var næstum dottinn fyrir bíl í þessum viðbjóði hér fyrir helgina.

Þegar saltaustur bæjarins hófst í fyrravetur risu margir upp á afturfætur og mótmæltu þessum fjanda. Það er alveg sama hvaða rök hafa verið borin fyrir ráðamenn bæjarins, þeir virðast ekki hlusta á neitt annað er eigin huga. Þeir reyna að slá svifryki í augu bæjarbúa, en við erum ekki fífl. Við vitum að moldin, sem bærinn hefur borið á götur í stað sands, hún fýkur. Sandurinn fýkur ekki nema í aftakaveðri. Ekki heldur mölin né tjaran í malbikinu. En saltdrullan verður hins vegar auðveldlega að ryki – þegar og ef hún nær að þorna.

Í úthverfum, þar sem bærinn hefur ekki ennþá ausið úr saltbrunnum sínum, er enn viðunandi ástand, snjór treðst og þar er umferð gangandi og akandi jafnan greið. Og þar eru göturnar ekki brúndrullugar meðan snjóar

Ég legg til að völdin verði tekin af saltkellingunum og umferðarástandið í Akureyrarbæ verði fært til viðunandi horfs, til fyrra horfs, þegar hægt var að fara hér um af þokkalegu öryggi og án þess að maður þyrfti að bera saltklepra inn á gólf heimila og fyrirtækja – án þess líka að þurfa að sæta færis ef hiti fer yfir frostmark að þvo af bílum sínum saltskánirnar. Þær eru ekki góð ryðvörn og maður nær aldrei að hreinsa nema rétt það sem á yfirborðinu sést. Það gengur ekki til lengdar að einhverjir nefndarmenn fái að láta einkaduttlungar sínar ráða gegn skynsamra manna ráðum

Burt með saltdrulluna af strætum Akureyrar!


1

RE: Ógeðið á Akureyrarstrætum

Jón Stefánsson - 07.12.2008 17:10 - jonstefans[hjį]gmail.com

Heyr heyr! Tek undir hvert orð. Þetta er ömurlegt svona. Þessir sveppir sem koma þessu á eru algerir þverskallar, eins og þú sagðir þá bárust fjöldamargar kvartanir þegar þetta byrjaði og síðan þá hefur bara verið bætt í :(

 

Þessir njólar ættu að prófa að ganga um á götum bæjarins í stað þess að keyra, þá er ekki víst að þeir myndu lofa saltið mikið lengur. Sem gangandi Akureyringur bókstaflega hata ég þetta saltaustur.


2

RE: Ógeðið á Akureyrarstrætum

Sverir Páll - 07.12.2008 19:46 - svp[hjį]ma.is - svp.is

Segðu, maður, segðu!

Svo heyrði ég í hádeginu viðtal við einhvern deildarstjóra hjá bænum sem sagði að það væru nánast engar kvartanir út af saltinu. Jæja! Hann heyrir illa. Og virðist vera búinn að þurrka allt eldra en vikugamalt út af minninu hjá sér. Ég hef til dæmis séð skrifað um þetta í Vikudag nýverið.

Vandamálið er bara það að bærinn hefur ekki viljað hlusta á kvartanir út af þessu og engu sinnt þótt mótmæli væru mikil í tilrauninni síðasta vetur. Nei. Það er ekkert hlustað á fólk! Og núna er búið að ausa tugum tonna af salti á göturnar og þeim finnst þetta bara fínt. Akureyri, ógeðslegar götur í öndvegi!


3

RE: Ógeðið á Akureyrarstrætum

Brynja - 07.12.2008 22:02
Hverjir eru kostirnir við saltið?

4

RE: Ógeðið á Akureyrarstrætum

Sverrir Páll - 07.12.2008 23:25 - svp[hjį]ma.is - svp.is

Kostirnir hafa verið taldir þeir að saltið dragi úr hálku. Þá hafa saltkerlingarnar haldið því fram að saltið dragi úr svifryksmengun og að saltausturinn geri nagladekk óþörf.

Áratugum saman hefur sandur dugað vel til að draga úr hálku. Hins vegar hefur bærinn brugðið á það ráð að nota ekki hreinan fjörusand eða ársand heldur moldar- og leirblandað jarðefni í stað sands. Það hefur, þegar það þornar, orðið að rykskýjum. Saltrykið er að vísu líka svifryk, en það taka bæjaryfirvöld ekki með í reikninginn.

Þau taka heldur ekki með í reikninginn að saltið skemmir malbikið jafnvel miklu meira en beittustu naglar.  Þegar saltblandað vatnið er langtímum saman á mörkum frosts og þíðu og smýgur í fínustu holur og sprungur verða frostskemmdirnar, sem éta malbikið upp. Þetta hefur fræðimaður reynt að skýra fyrir mér með eðlisfræðilegum formúlum. Ég trúi honum betur en þeim sem stjórna saltgrautargerðinni á Akureyri.


Leggja orš ķ belg

18.05.2012 20:19
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.179.230, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur