Sverrir Pįll Erlendsson

http://svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Hálsakot - framhald

05.09.2009 22:10 - 2001 lestrar

Framhaldssagan úr Hálsakoti byrjar á fegurð morgunsins. Ég brá upp 10:20 linsunni til að ná sem mestu af sýninni til suðurs og nágrennis og svona leit þetta út:

img_7991_600

En svona nánar með linsu sem teygir þetta ekki svona rosalega var Akureyrarsýnin svona í morgunkyrrðinni - já kyrrðinni. Ég heyrði ofan af Glerárdal bæði mannamál í hátalara, sennilega kynni á einhverju mótorhjólakappakstursmóti, því vélarhljóðin voru mikil, og svo var endalaust plaff-plaff frá skotsvæðinu. Annars var kyrrt:

img_7995_600_01

En pallasmíðin tók svo völdin. Gekk afar vel og þegar ég var að fella fjöl að þremur staurum - síðustu spýtu dagsverksins, komu Jón Már og Rósa í kaffi og tóku með sér einhvern gust, sem varð hálfkaldur þegar dró svo fyrir sólu. En mér tókst sem sagt að klára pallinn við suðurenda hússins alveg enda milli eins og sjá má hér:

img_8001_600

Til að sjá þetta betur skellti ég 10:20 linsunni í, og hún gerir þetta allt miklu stærra en það er, en sýnir samt hvað um er að ræða:

img_8005_600

Og nú er næst að ganga frá brúninni að framan og svo er þetta smáræði eftir - og svo bakhliðin, en það er bara barnaleikur - spurning hvort Húsasmiðjan á timbur i það handa mér. Þar er ekki alltaf til það sem maður þarf.

img_8007_600 


1

RE: Hálsakot - framhald

Jóhannes Laxdal - 06.09.2009 13:41 - jlaxdal[hjį]internet.is
Til hamingju og takk fyrir svarið um daginn. Ég kannast við þessa kyrrð sem þú lýsir. Ég átti heima í Tungu á mínum yngri árum Smile 

2

RE: Hálsakot - framhald

Eygló Aradóttir - 07.09.2009 18:48

Sæll og gratulera með útsýnið og danspallinn þinn.

En er ekki óvenjumikill snjór núna í fjöllunum suðvestan við Ak? Eða hefur snjóað í fjöll nú þegar?

Kv. úr Suðurlandssíðdegisskúrnum.


3

RE: Hálsakot - framhald

svp - 08.09.2009 07:36 - svp[hjį]ma.is - svp.is

Sæl Eygló

Rétt er það að snjór er óvenju áberandi í fjöllum, þar munar mestu að undanfarið hefur náð að hvítna svolítið efst í fjöllum og þar hefur verið spartlað með nýsnævi í rifur og flekki sem annars eru ekki áberandi á þessum tíma vegna áfalls og foks. Hlíðarfjallið var hvítt niður í miðjar hlíðar hér rétt um daginn en náði að hreinsa að mestu af sér á einum degi - nema þar sem kalt er undir. En komdu nú einhvern tíma í kaffi á pallinum.

Kveðja
svp


Leggja orš ķ belg

31.07.2010 11:13
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.191.101, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur