Hélt áfram að saga og skrúfa í dag, þetta mjakast en tekur tíma. Stefán Þór kom heill og glaður í heimsókn og við drukkum kaffisopa á grænu stólunum við lítið tekkborð. Þetta eru húsgögn af Móaflötinni - og þetta var fyrsta kaffið á pallinum í Hálsakoti. Frábært - og sólin lét sjá sig á meðan. Hér sést á myndum hvernig var þegar ég hætti í kvöld og samanburðurinn er við myndirnar frá í gær.
Ég er sem sagt byrjaður að klæða frá enda til enda, meðfram öllu húsinu og á báða bóga.
Þarna sést þetta ofan úr hlíðinni. Og það er talsvert eftir

RE: Eftir tveggja daga törn
gisli johannsson - 27.08.2009 21:17Sjaese, thetta er ekkert sma dundur flott. Thu ert snillingur pa.
g-
RE: Eftir tveggja daga törn
Halldór Svavar, Edda og Emilía - 27.08.2009 22:01 - halldorsvavar[hjį]gmail.comÞetta er aldeilis að taka á sig flotta mynd! Enginn smápallur
Hlökkum mikið til að kíkja í kaffi til þín við tækifæri...margt að ræða...hehe
RE: Eftir tveggja daga törn
svp - 27.08.2009 23:05 - svp[hjį]ma.is - svp.isJájájá. en það hefði verið gott að hafa vanan mann með í spilinu, Halldór Svavar. Ég er að vísu með góðan smið sem sá um mælingar og gekk frá burðarvirkinu og stillti það af.
Auðvitað verður pallurinn alltaf opinn mínu fólki.