Sverrir Pįll Erlendsson

http://svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Austurpallurinn klár

30.08.2009 23:28 - 1194 lestrar

Hé var gert á pallsmíði um hegina, Edda og Maggi í heimsókn og Akureyrarvaka í gær, en ég greip að vísu i verk eftir hádegi í dag og lauk við að klæða austurhluta pallsins. Næst er að þekja suðursvæðið, framan við húsið. Verð við það með annarri hendinni í vikunni sem er að  hefjast. Með hinni hendinni verður unnið að undirbúningi skólaársins og kennslunnar. MA verður settur sunnudaginn 13. september.

img_0128_640

Þarna sést fyrirbærið úr berjamónum. Uppgangan verður ekki þar sem brettið er, það er bara til bráðabirgða. Ég ætla að hafa tröppur upp á austurhliðina þar sem spýturnar liggja hér nær okkur, einhvers staðar í grennd við undirstöðuna með breiðari svörtu röndinni.

img_0127_640

Þarna sést þetta norðan frá. Ég á eftir að saga stubbana og ganga frá kanti, en þetta er ágætis útivistarsvæði í sólskininu og hléi fyrir hafgolunni. Og þarna eru Eyrin, Innbærinn og Suðurbrekkan eins og þetta leit út í dag, grátt og kuldalegt.


1

RE: Austurpallurinn klár

Jóhannes Laxdal - 31.08.2009 00:15 - jlaxdal[hjį]internet.is

Sæll Sverrir, ég hef fylgst spenntur með þessum framkvæmdum þínum í sumar, en voðalegt slugs er þetta á þér :)  það ætti nú ekki að vera nema dagsverk að henda klæðningu á þessa grind.

p.s Ertu með bústaðinn í landi Veigastaða eða Vargjár?  átta mig ekki alveg á myndunum


2

RE: Austurpallurinn klár

Sverrir Páll - 31.08.2009 07:24 - svp[hjį]ma.is - svp.is

Sæll Jóhannes. Það er satt, þetta er óttalegt droll á mér. Við skulum segja að ég sé að treina mér skemmtunina. Það er svo gaman að búa eitthvað til "Laughing"

Hálsakotið mitt er í Heiðarbyggð, sem er í landi Geldingsár, talsvert norðar en Varðgjá og Veigastaðir.


3

RE: Austurpallurinn klár

Monni - 01.09.2009 21:39 - Gsnael[hjį]get2nt.dk

Sæll Sverrir Páll.
Sit hér í Toulouse og nýt utsýnisins yfir pallinn, fjörðinn og Akureyrina.
Svona útsýni finnst ekki í Frakklandi!!
Hlakka til að hitta þig á skólasetningu og heyra meyra um framkvæmdirnar.

Bestu kveðjur.
Monni


Leggja orš ķ belg

31.07.2010 11:05
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.191.102, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur