Efni
Rækjusalatið 2005
18.01.2009 22:48 - 609 lestrar - Orš ķ belg (0)Salatið
½ kg rækjur
10 sólþurrkaðir tómatar úr glasi, skornir í fína strimla
1-1½ glas af ólífum til dæmis með ansjósufyllingu, í þunnum sneiðum
1 pk. kirsuberjatómatar, þunnt sneiddir
1 fínt skorin paprika
1 höfuð Icebergsalat fínt skorið
Blandað saman í skál og dreypt yfir með örlitlu af balsamediki. Best er að brytja salatið og bæta því út í skömmu áður en borið er á borð, þannig er þetta ferskast.
Sósan
1 dós af sýrðum rjóma
½ msk. hunang
1-2 hvítlauksrif
u.þ.b. ½ matskeið af balsamediki
u.þ.b. teskeið af Ketjap manis (sæt indónesesísk soja)
svolítið karrý
svolítið af nýmuldum svörtum pipar
svolítið af vel muldu safrani (gefur góðan lit og smábragð)
Allt saman hrært saman og smakkað til. Best að sósan standi nokkurn tíma, til dæmis yfir nótt í ísskáp.
Þetta er borið fram með ristuðu brauði.
12. jan 2005 - svp
Chilisulta
18.01.2009 22:23 - 1156 lestrar - Orš ķ belg (0)
chilialdin, magn og styrkleiki eftir smekk
1 stór paprika í sama lit og chili-aldinin
150 ml eplaedik (cider vinegar)
300 g sykur
3 msk. gult Melatin (eða annar sultuhleypir)
Chilialdin og paprika fræhreinsuð og sett í matvinnsluvél ásamt ediki og sykri. Vélin látin ganga þar til allt er orðið að mauki. Sett í pott, hitað að suðu og látið malla í 2-3 mínútur. Potturinn tekinn af hitanum, sultuhleypi hrært saman við, sett aftur á helluna, látið sjóða í 2 mínútur og hrært oft á meðan. Tekið af hitanum, látið standa smástund og síðan hellt í hreina krukku og kælt.
Sultuna má t.d. bera fram t.d. með osti og kexi, eða með köldu kjöti. Hana má líka nota sem gljáa á svína- og fuglakjöt.
Ofnkartöflur með hvítlauk
29.04.2007 09:21 - 1717 lestrar - Orš ķ belg (0)Kartöflur skornar í helminga eða báta.
Heil hvítlauksrif, ekki afhýdd. Mega vera mörg.
olía, chiliduft, salt.
Kartöflurnar settar í ofnskúffu eða eldfast mót.
kvílauksrifin líka.
olíu hellt yfir og kartöflurnar og rifin vel böðuð í henni
svolítlu af chilidufti dreift yfir og örlitlu salti
Bakað í ofni við 200° í 20-30 mín.
« fyrri sķša | nęsta sķša »
