Sverrir Pįll Erlendsson

http://svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Skiptir lengdin máli?

27.07.2009 08:31 - 1828 lestrar

Hvers vegna eru menn hættir að tala um ráð og segja frekar ráðleggingar? Það er meira að segja talað um að gefa eða veita ráðleggingar (áður dugði að leggja á ráðin - eða einfaldlega gefa ráð).

Hvers vegna eru menn hættir að tala um lán og segja frekar lánveitingar? Jafnvel hef ég heyrt talað um að menn hafi veitt sjálfum sér og öðrum lánveitingar eða framkvæmt lánveitngar (ég hefði kallað það að veita lán).

Er þetta hluti af því að menn halda að langt mál sé betra en stutt. Að framkvæma uppskurð á einhverjum sé nákvæmara og betra en að skera einhvern upp?

Það er rangt. Skýrt, greinargott, knappt og hnitmiðað er langlokunni betra.


Leggja orš ķ belg

11.03.2010 00:57
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.191.84, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur