Stundum hefur ég verið spurður hvort mér finnist ekki rangt að sleppa því að fallbeygja vefslóðir, það sé aulalegt að heyra þær alltaf í nefnifalli, hvernig sem þær standi í setningu.
Hér er átt við það að ef um væri að ræða vef sem kallast visir.is ætti að segja: Ég las það á visi.is, ef um væri að ræða vefinn sjallinn.is væri rétt að segja: Upplýsingar má sjá á sjallanum.is og svo framvegis.
Ég hef svarað því til að mér finnist villandi ef þessi vefheiti eru fallbeygð. Enginn finnur neitt af viti ef hann slær inn í tölvuna sina sjallanum.is. Þetta eru eiginlega bara skammastafanir, og skammstafanir beygjum við ekki, er það? Styrkur frá Afli háeffi til Krafts háeffs? Nei.
Stundum vill svo til að í vefslóðum eru nafnorð en stundum skammstafanir og mér finnst eitt eiga yfir það allt að ganga og það er mín skoðun að heppilegra sé að líta á þetta allt sem skammstafanir. Það er enginn nefnifallssýki.

RE: Punktur is
Valdís Þorsteinsdóttir - 12.05.2009 23:46 - valdis[hjį]gmail.com - www.valdisbjork.comRE: Punktur is
svp - 13.05.2009 00:14 - svp[hjį]ma.is - svp.isRE: Punktur is
Toggi - 18.05.2009 17:24 - toggitryggva[hjį]gmail.com - www.varrius.blogspot.comAnnkanalegt að beygja vefslóðir. Kannski er það ekki síst vegna þess að það er svo fráleitt að beygja "punktur is". Svo það verður skrítið að beygja sumt en ekki annað. "Ég sá þetta á Vísi púnkti is(s)" er alveg ómögulegt.
Sem betur fer eru algengar vefsíður auðkenndar án punkts is, svo við tölum um að sjá eitthvað á Eyjunni, kíkja á Vísi, gott ef ekki heimsækja Sverri Pál.
Og svo má náttúrulega fara hina frumlegu leið baggalúts sem leyfir einfaldlega allar beygingar og íslenska stafi í url-inu sínu. Svo maður getur slegið inn "Baggalúts.is" og sama snilldin blasir við.
RE: Punktur is
Kristinn Ingi Pétursson - 18.12.2009 16:54 - diddiminn[hjį]gmail.com - www.kip.is"Það er enginn nefnifallssýki. " Þarna er einu "n" ofaukið því hún nefnifallssýkin er engin en ekki enginn
Þetta er nú meira í gríni en alvöru, ekki nenni ég að fara almennilega yfir kip.is, þar er allt fullt af ásláttar og fljótfærnisvillum.
Sverrir þetta er stórskemmtileg síða svp.is, mér finnst gaman þegar fólk gagnrýnir mál annarra því það er liður í að halda málinu réttu og fögru.
Eitt og annað fer afar mikið fyrir brjóstið á mér í þessum efnum og rita ég stundum eftirfarandi á bloggsíður:
- Sunnlendingar, vinsamlegast munið:
Það er eitt „r“ í orðinu „fleiri“. Vinsamlegast berið orðið fram eins og það er skrifað, ekki segja eða skrifa „fleirri“.
Það er eitt „n“ í orðinu trúna, kúna, ána, brúna. Dæmi, missa trúna, mjólka kúna, vaða yfir ána eða fara yfir brúna. Ekki segja eða skrifa vaða yfir „ánna“.
Kær kveðja,
Kristinn Ingi Pétursson