Sverrir Pįll Erlendsson

http://svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Fyrirsagnir

30.06.2009 09:08 - 1758 lestrar

Fyrirsagnir eru afar mikilvætur hluti ritaðs texta, einkum í fréttum blaða. Það skiptir miklu máli að fyrirsögn sé hnitmiðuð og feli í sér kjarna fréttar og veki áhuga lesandans, fyrirsögnin er þannig mikilvægasta beitan sem nota skal til að lokka lesandann til að staldra við og lesa greinina.

Því miður er ekki öllum lagið að semja góðar fyrisagnir. mér finnstvera afskaplega gott dæmi um það á forsíðu Morgunblaðsins í dag, þar sem aðalfyrirsögni er Fjórfalt meiri umferð og margfalt meiri slysatíðni.

Í fyrsta lagi er fyrirsögnin alltof löng. Í örðu lagi hljómar hún í eyrum mér nánast sem bull. Í þriðja lagi finnst mér hún vera á afskaplega slöku máli og alltof flóknu. Hjá mér kviknaði engin löngun til að lesa fréttina.

Orðinu meiri, sem þarna er tvítekið, er til dæmis algerlega ofaukið. Fjórföld umferð - margföld slysatíðni hefði til dæmis verið miklu betri texti. Enn betur hefði mátt gera, en látum hér við sitja.


1

Fjórföld

Margrét - 30.06.2009 18:21 - margret[hjį]bhs.is - frettamidlar.blogspot.com

Sammála þér, afleit fyrirsögn. Mér finnst að orðið fjórfalt mætti missa sín. Endurtekning ekki góð, ég sting upp á:

Umferðarþungi mikill og margföld slysatíðni. 

 (öryggiskóðinn er asnalegur og erfiður að sjá - ég þurfti að vélrita hann 3svar)


Leggja orš ķ belg

31.07.2010 11:15
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.191.101, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur