Sverrir Pįll Erlendsson

http://svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Enginn grunaður

08.06.2009 08:23 - 1093 lestrar

Nú er enginn lengur grunaður. Það er ekki sagt frá því að Nói Nóason sé grunaður um fjársvik eða innbrot eða að vera barnaníðingur. Nei, það er alltof einfalt. Núna er flottast að segja að Nói Nóason hafi fengið stöðu grunaðs manns.

Ég hef verið að velta því fyrir mér hvernig í ósköpunum svona orðhengilsháttur kemst inn í málið. Ef til vill er þessi þvæla til komin vegna þess að einhverjir lögspekingar hafa orðið fyrir áhrifum af einhverri útlensku. Kannski er þetta einfaldlega klúður eftir einhverja snillinga sem sitja ár eftir ár og þýða doðranta Evrópusambandsins. Ég get ekki skilið að nokkrum heilvita manni hafi dottið í hug að þegar grunur fellur á einhvern fái hann þá stöðu að vera grunaður. Nei. Mér finnst rétt að við höldum áfram að gruna þann sem grunaður er. Þá getum við áfram litið á það sem jákvæða frátt ef einhver fær stöðu skólameistara eða landlæknis.


1

RE: Enginn grunaður

Jón Kjartan Ingólfsson - 11.06.2009 01:04 - joningolfs[hjį]gmail.com

Þetta vissulega virkar kjánalegt, en ég held að um sé að ræða einhverja lögformlega skilgreiningu - það sé sem sagt sitt hvað að vera grunaður og að "hafa stöðu grunaðs" gangnvart einhverri rannsókn. Það má t.d. skv. fréttum síðustu daga frysta eigur þeirra sem hafa þessa "stöðu grunaðra" - ekki ef þeir eru bara grunaðir.

Ég legg samt ríka áherslu á "ég held" - ég er ekki alveg með þetta á hreinu.


Leggja orš ķ belg

31.07.2010 11:07
*Nafn:

Netfang:

Veffang:

Titill:


Texti:
IP tala žķn er 38.107.191.102, hśn er rekjanleg.

:
Öryggiskóši

Upp aftur