Sverrir Pįll Erlendsson

http://svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Rabarbarapæ Alberts Eiríkssonar

18.01.2009 22:47 - 921 lestrar - Orš ķ belg (0)

Rabarbari ca 4-5 leggir
200 gr smjör
1 msk marsipan
2 dl sykur
1 tsk lyftiduft
2 egg
2 dl hveiti
vanillusykur


Þvoið rabarbarann og hreinsið, brytjið í 1-2 cm þykkar sneiðar.  Setjið í eldfast form, vel botnfylli eða að vild.
Bræðið smjör ásamt marsipani í potti, látið ekki sjóða.  Bætið útí sykri, lyftidufti, eggjum hveiti og vanillusykri.  Blandið vel saman.   Hellið deiginu yfir rabarbarann. Bakið við 170 ° í 25-30 mín eða þangað til pæið er orðið gulleitt að ofan.
Gott er að setja kókósmjöl, engifer eða kanil til tilbreytingar. Einnig má nota epli með rabarbaranum.
Ef komið er fram í ágúst er gott að strá 1 msk af sykri yfir rabarbarann í forminu og láta bíða í nokkrar mínútur áður en deigið er látið yfir.  Rabarbari verður súrari eftir því sem á sumarið líður.

 


Nougatkaka Brynju

18.01.2009 22:45 - 554 lestrar - Orš ķ belg (0)

150 g nougat
100 g smjör
3 egg
1½ dl púðursykur
2 dl jarðhnetur (saltaðar)
½ tsk. Salt
2½ dl hveiti
1 tsk. Lyftiduft

Nougat og smjör brætt.
Þeyta eggin og sykurinn hressilega.
Öllu blandað saman og sett i form sem er ca. 25x35cm.
Bakað í korter i 200 gráðum
Bræðið súkkulaði með ca 1 tsk. Olíu og smyrjið á kökuna

 


Kryddbrauð Brynjars

18.01.2009 22:43 - 543 lestrar - Orš ķ belg (0)

 

2,5 dl hrásykur,
5,5 dl spelt,
2 tsk natron,
2 tsk negull,
2 tsk kanill,
1/2 tsk engifer,
100gr smjör,
1/2 dl agave síróp

2,5 dl mjólk og
2 egg
 

Smjör, mjólk og síróp hitað, EKKI soðið.

Þurrefnum blandað saman í skál.

Vökvanum hrært saman við þurrefnin.

Eggjunum bætt varlega saman við

Bakað uns festist ekki á prjóni (hiti 180° eða um það bil)


Frönsk súkkulaðikaka með kaffi, uppskrift frá Markúsi Grigo í Danmörku:

18.01.2009 22:35 - 704 lestrar - Orš ķ belg (0)


1 1/4 dl sterkt kaffi
200 g sykur
200 g gott dökkt súkkulaði, grófsaxað
225 g smjör
4 egg

24 cm form smurt og stráð hveiti eða polentu.

Kaffi og sykur soðið saman í dálitla leðju. Súkkulaði og smjöri bætt í og brætt. Kælið þessa blöngu niður í ca 50° (fingurheitt). Hrærið eggin saman við, eitt í einu.


Hellið deiginu í formið og bakið við 170° í 60-70 mínútur. Kakan á að falla og best er hún ef hún fær að standa og jafna sig fram á næsta dag.


Frönsk súkkulaðikaka (Drottningin af Saba)

18.01.2009 22:33 - 551 lestrar - Orš ķ belg (0)


150 g súkkulaði
75 g smjör, lint
150 g sykur
3 stór egg, aðskilin
2 msk kartöflumjöl eða hveiti
75 g malaðar möndlur

Ofninn hitaður í 200°C og meðalstórt springform smurt og pappírsklætt. Súkkulaðið brotið í bita og brætt í vatnsbaði eða örbylgjuofni og síðan hrært saman við lint smjörið. Eggjarauðurnar þeyttar vel með sykrinum. Súkkulaðiblöndunni hrært saman við og síðan kartöflumjölinu og möndlunum Eggjahvíturnar stífþeyttar og blandað gætilega saman við með sleikju. Sett í ofninn og kakan bökuð í um hálftíma, eða þar til hún er farin að stífna en enn svolítið blaut í miðju.

(Frá Nönnu)


Frönsk súkkulaðikaka (með svolitlu hveiti)

18.01.2009 22:32 - 535 lestrar - Orš ķ belg (0)


250 g suðusúkkulaði
225 g smjör
110 g sykur
2 msk Grand Marnier eða koníak (eða 2 tsk vanilluessens)
5 egg
1 msk hveiti

Ofninn hitaður í 180°C og meðalstórt springform smurt og pappírsklætt. Súkkulaði, smjör og sykur sett í pott og hitað gætilega þar til súkkulaðið og smjörið er bráðið og samlagað sykrinum. Látið kólna dálítið og síðan er líkjörnum hrært saman við. Eggin léttþeytt í skál og hveitinu þeytt saman við. Súkkulaðiblöndunni hrært saman við. Hellt í form og bakað í um hálftíma (gæti þó þurft lengri tíma en þessi kaka á að vera aðeins mýkri í miðju en kakan á undan). Látin kólna alveg í forminu.

(líka Nanna, held ég)


Frönsk súkkulaðikaka (alveg hveitilaus)

18.01.2009 22:30 - 536 lestrar - Orš ķ belg (0)


200 g suðusúkkulaði
200 g smjör
200 g sykur
4 egg, aðskilin

Ofninn hitaður í 180°C og meðalstórt springform smurt og pappírsklætt. Súkkulaðið brotið í bita, sett í pott ásamt smjörinu og brætt við mjög vægan hita (eða brætt í vatnsbaði). Eggjarauðurnar þeyttar vel með 100 g af sykri og síðan er súkkulaðiblöndunni hrært saman við með sleikju. Eggjahvíturnar hálfþeyttar, sykrinum bætt út í smátt og smátt og þeytt áfram þar til þær eru stífar. Blandað gætilega saman við deigið með sleikju. Hellt í formið og bakað í um 40 mínútur, eða þar til prjónn sem stungið er í miðja kökuna kemur hreinn út. Látin kólna alveg í forminu.

(Nanna, næstum örugglega)

 


Brúnkur Nigellu

18.01.2009 22:28 - 493 lestrar - Orš ķ belg (0)
                                                          
 400 g ósaltað smjör                    
 350 g gott hálfbiturt suðusúkkulaði    
 6 egg                                  
 1 1/4 bolli af sykri                   
 1 matskeið af vanillu                  
 1 1/4 bolli af hveiti                  
 1 teskeið salt                         
 1/2  bolli af hvítu súkkulaði, saxað   
      eða dropar                        
 1/2  bolli af hálfsætu súkkulaði, saxað
      eða dropar                        
 2 teskeiðar af flórsykri til skrauts   
                                        
 Aflangt skúffumót 28 x 22 cm með bökunarpappír á botni og hliðum. Forhitið ofninn í 175 gráður.  

Bræðið smjörið og hálfbitra súkkulaðið í stórum skaftpotti við lágan hita. Þeytið saman eggin, sykurinn og vanilluna.                             
                                        
 Látið súkkulaðiblönduna kólna örlítið. Hellið svo í hana eggja- og sykurblöndunni og blandið vel. Bætið við hveitinu
og saltinu. Bætið síðan við hvíta og hálfsæta súkkulaðinu Hrærið öllu saman og hellið blöndunni í mótið.           
                               
Bakið í 25 mínútur. Kakan er tilbúin þegar yfirborðið þornar og er ljósara en kakan að innan. En hún á að vera dökk og mjúk. Fylgjast verður vel með kökunni. Hún má ekki verða of þurr að innan. Munið að kakan heldur áfram að bakast meðan hún er að þorna.          
                                        
 Skerið kökuna í ferkantaða bita meðan hún er enn volg og raðið bitunum á stóran disk og sigtið flórsykurinn yfir.

« fyrri sķša | nęsta sķša »

Upp aftur