Sverrir Pįll Erlendsson

http://svp.is/

Vefsetur Sverris Pįls Erlendssonar, kennara viš Menntaskólann į Akureyri.

Efni

Sniglar ķ beikongjörš

17.10.2006 10:39 - 1098 lestrar - Orš ķ belg (0)
1 dós sniglar (24 stk)
12 sveppir 2-3 cm í þvermál
12 sneiðar af beikoni, ekki of söltu
1 hvítlauksrif
smjörklípa

Þvoið sveppina. Brjótið eða skerið úr þeim stafinn.

Látið sveppina á hattinn í heitt smjör á pönnu og látið krauma þar við hóflegan hita uns vökvi fer að gutla í sárinu eftir stafinn. Setjið þá agnarögn af mörðum hvítlauk í sárið. Látið kólna.

Setjið 2 snigla ofan á sárið á sveppnum og vefjið beikonsneið sem gjörð utan með þessu. Setjið á eldfast fat og bakið við hressilegan hita uns beikonið er orðið sem hörð og stökk gjörð utan um snigilinn á sveppnum.

Berið fram með fínt skornu grænmeti og timiangrein, dreypið agnarögn af balsamediki yfir grænmetið.

Gott með hvítlauksbrauði.

Indverskar smjörsteiktar rękjur

17.10.2006 10:38 - 1073 lestrar - Orš ķ belg (0)
500 g rækjur
3 hvítlauksrif
3 tsk engifer
1/2 tsk. chiliduft
3 msk sítrónusafi
salt eftir smekk
1/4 tsk. turmerik
1/2 tsk. negull mulinn
1/2 tsk corianderduft
1/2 tsk kumminduft
5 g smjör

Mauka engifer og hvítlauk.

Blanda kryddinu saman og hræra rækjunum varlega saman við það. Geymið a.m.k. klukkustund í ísskáp.

Bræðið smjör á pönnu og snöggsteikið rækjublönduna.

Berið fram með sítrónubátum og ristuðu brauði eða Prawn Crackers rækjufrauðkökum

Þetta kenndi Surekha Datye mér fyrir mörgum árum


Hvķtlauksforréttur

15.10.2006 16:23 - 1123 lestrar - Orš ķ belg (0)
½-1 hvítlaukur á mann
örlítið af góðri olíu
salt
pipar

Hreinsið utan af hvítlauknum allt þurrt og laust hýði. EKKI taka hvítlaukinn í sundur.

Setjið hvítlaukinn í eldfast form með loki eða útbúið box úr álpappír utan um hann. Ekki vefja pappírinn þétt að lauknum heldur leyfið honum að vera lausum.  (Til eru sérstakir leirpottar, sem setja má í örbylgjuofn, og þannig er hvítlaukurinn 2-4 mínútur að bakast, eftir laukafjölda og/eða gerð ofna.)

Bakið hvítlaukinn við góðan hita í u.þ.b. hálftíma.

Þegar laukurinn er bakaður er hægt að taka eitt og eitt rif í einu og kreista úr því innihaldið, kremkennt og gott.

Afar ljúft með ristuðu brauði og sýrðum rjóma.

Paprikuforréttur Paws

15.10.2006 16:19 - 1033 lestrar - Orš ķ belg (0)
½-1 paprika á mann

Skorin í tvennt, fræ hreinsuð úr. Helmingarnir lagðir á bökunarpappír og bakað í ofni við 180-200° í 30 mínútur. Tekið út og látið kólna

Himnunni svipt af paprikunni. Skerið í strimla. Leggið á diska.

Hvítlaukur saxaður örsmátt og dreift yfir paprikustrimlana. Góð ólífuolía látin leka yfir þá og nokkrir dropar af fersku lime. Örlítill nýmalaður pipar. Agnarögn af fingurmuldu Maldonsalti ef þess er óskað.

Det smager!

« fyrri sķša | nęsta sķša »

Upp aftur