Döðlur vafðar með beikoni, helst fitulitlu. ég notaði ítalskt Fiorucci, Speck.
Settar saman tvær og tvær á tannstöngul.
brúnað i smjöri.
kælt.
Risarækjur látnar liggja í baði af olíu og miklum pressuðum hvítlauk
léttsteikt og kælt
Teskeið full af laxahrognum frá Svalbarðsströnd látin á disk, ein döðlutvenna og 2-3 rækjur með.
Einfalt en býsna gott.
