6 væn stykki saltfiskur
6 þunnar sneiðar skinka
2 msk. smjör
3 msk. olífuolía
3 msk. hveiti
1 dl hvítvín
1 tómatur eða tómatpasta
2 laukar
3 egg
3-4 hvítlauksrif
salt, pipar, steinselja
stappaðar kartöflur
Fiskurinn útvatnaður með roðið upp í 24-36 tíma. Vatni hellt af og stykkin roðflett og beinhreinsuð. (Eða nota tilbúinn, útvatnaðan fisk, til dæmis frá Ektafiski.) Fiskurinn lagður í eldfast mót í þunnum sneiðum og skinka á milli laga.
Laukur skorinn í þunnar sneiðar og steiktur í smjöri eða olíu - ekki brúnaður - og settur ofan á fiskinn. Hveiti hrært út í hvítvíni og hræran sett út í fituna á pönnunni og tómatur, hvítlaukur og krydd með. Hrært vel og hitað og hellt yfir fiskinn. Steinseljan yfir þetta allt.
Kartöflustappa ofan á þetta og þekur vel. Bakað í ofni við góðan hita í 20-30 mínútur. Stífþeytt eggin sett ofan á og látið bakast þar til hún er gulbrún.
Etið með ristuðu brauði eða hvítlauksbrauði. Þetta er með því allrasaðsamasta sem ég man eftir að hafa borðað.
