Efni
Gott ķ gogginn
Mannamįl
Skýjum neðar
svp segir
Viltu aðspyrja hann um það?
08.06.2009 08:31 - 566 lestrar - Orš ķ belg (1)Ég hef að vísu ekki heyrt svona vitlausa spurningu, en við má búast að ekki líði á löngu þar til svo verður. Það hefur lengi verið kækur hjá útvarpsfólki að nota orðið aðspurður þegar fullkomlega nóg hefði verið að segja spurður. Og reyndar hefði mátt sleppa spurður, hann hefði sjálfsagt fátt sagt ef enginn hefði spurt. Dæmi: Aðspurður sagði Jón að hann væri enginn auli. Langbest væri að segja: Jón sagði að hann væri enginn auli.
En að segja eins og stúlkan sagði um Steingrím Sigfússon áðan: Aðspurður um lánin sagði Steingrímur að... þá virðist vera orðin til sögnin aðspyrja og sambandið aðspyrja um. (Spurning hvort næst verði sagt umaðspurður sagði Steingrímur eitthvað!!!)
Pönnusteiktur saltfiskur
18.10.2006 23:54 - 1720 lestrar - Orš ķ belg (0)
Fiskurinn
700 g saltfiskur útvatnaður
hveiti
egg
ókryddað rasp
svartur pipar
Fiskurinn skorinn í jafna bita. Bitunum velt upp úr hveiti, síðan eggi og loks raspi. Steiktur á pönnu í olíu, kryddaður með nýmuldum pipar eftir smekk.
Sósan:
½ rauð paprika
½ græn paprika
2 laukar
4-5 hvítlauksrif
1 dós niðursoðnir tómatar
½-1 tsk. soya
½ tsk hunang
Paprikan skorin í ræmur, laukarnir sneiddir og hvítlaukurinn saxaður. Allt steikt í olíu í skamma stund. Tómötunum skellt út á þetta og síðan soyunni og hunanginu. Látið krauma í 10-15 mínútur.
Fiskstykkin lögð ofan á sósuna í pönnunni og þannig borið á borð.
Salatið:
tómatar sneiddir
rauðlaukur sneiddur
svartar ólífur
1-2 msk. balsamedik
2-3 msk. ólífuolía
Tómötum, ólífum og rauðlauk blandað saman í skál. Olíu og balsamediki hellt yfir.
Þessi uppskrift höfð eftir fyrrum lögreglustjóranum í Reykjavík í DV, sumarið 1998. Hann varð seinna yfirmaður útlendingaeftirlitsins og enn síðar yfirmaður Landhelgisgæslunnar og heitir að mig minnir Georg.
Ýsupanna
18.10.2006 23:50 - 1869 lestrar - Orš ķ belg (0)
2 ýsuflök
1 paprika
1/2 - 1 kúrbítur
6-8 tómatar
2-3 hvítlauksrif, pressuð
pipar
salt
Grænmetið skorið, steikt aðeins í olíu, lok sett á pönnuna og látið krauma svolitla stund (hámark 10 mínútur. Pipar og pínulítið salt.
Ýsuflökin skorin í renninga eða teninga og bitarnir settir út í grænmetið og látið krauma áfram þar til þykkustu bitarnir eru rétt að verða soðnir í gegn.
Borðað með soðnum kartöflum eða hrísgrjónum.
Bacalao a la Transmontana
15.10.2006 16:37 - 1947 lestrar - Orš ķ belg (0)
6 væn stykki saltfiskur
6 þunnar sneiðar skinka
2 msk. smjör
3 msk. olífuolía
3 msk. hveiti
1 dl hvítvín
1 tómatur eða tómatpasta
2 laukar
3 egg
3-4 hvítlauksrif
salt, pipar, steinselja
stappaðar kartöflur
Fiskurinn útvatnaður með roðið upp í 24-36 tíma. Vatni hellt af og stykkin roðflett og beinhreinsuð. (Eða nota tilbúinn, útvatnaðan fisk, til dæmis frá Ektafiski.) Fiskurinn lagður í eldfast mót í þunnum sneiðum og skinka á milli laga.
Laukur skorinn í þunnar sneiðar og steiktur í smjöri eða olíu - ekki brúnaður - og settur ofan á fiskinn. Hveiti hrært út í hvítvíni og hræran sett út í fituna á pönnunni og tómatur, hvítlaukur og krydd með. Hrært vel og hitað og hellt yfir fiskinn. Steinseljan yfir þetta allt.
Kartöflustappa ofan á þetta og þekur vel. Bakað í ofni við góðan hita í 20-30 mínútur. Stífþeytt eggin sett ofan á og látið bakast þar til hún er gulbrún.
Etið með ristuðu brauði eða hvítlauksbrauði. Þetta er með því allrasaðsamasta sem ég man eftir að hafa borðað.
« fyrri sķša | nęsta sķša »
